Já það var sko tóm gleði frá miðvikudegi til laugardags í
kóngsins Köben. Ástæðan? Jú...hópur föngulegra kvenna kom í
heimsókn í Íslendingahús. Þær Anna Birna, Tinna G. og
Ingalillý sáu til þess að ég varð aldrei hið minnsta þyrst þessa
daga og svo illt í maganum (af hlátri - auðvitað) að ég endaði
með að æla í heilan dag . Svo rosalega eftir mig var ég! 
Við skemmtum okkur rosa vel allan tímann. Það
var djammað fram undir morgun flesta dagana, verslað,
borðað, drukkið endalaust af jólabjór og svo auðvitað hlegið
endalaust líka.

Fimmtudagskvöldið var ógleymanlegt þar sem stefnan var tekin á
Grill barinn þar sem að stelpurnar lentu í marþonviðreynslu og
minnti þetta helst á speed-date (eða hvað það kallast). Það komu
allra kvikinda líki þarna að borðinu sem við sátum; Frakki í ógeðis
karrígulri peysu með brett upp á axlir, Englendingar (hver sagði að
Englendingar væru ekki handsome?), Ástralir og svo einhverjir
Danir. Stelpurnar hreinlega gátu valið úr karlmönnum og ef að
þetta fær þær ekki til að koma aftur þá veit ég ekki hvað
gerir það.
Hér að neðan má sjá karrígaurinn sem gerir sig aðeins
of heimakominn 

Á föstudaginn var ég heima með Emilíönu en það hlýtur að
hafa verið nokkuð gaman á djamminu því sumar létu ekki sjá sig
fyrr en fram undir morgun.
Emilíana heima í kósístemmingu.

Laugardagskvöldið var svo tekið með trompi og átti líka að vera
aðalkvöldið hjá okkur. Skelltum okkur á Umami í Sushi og
tilheyrandi. Það vildi ekki betur til en Anna Birna greyið var svo
hundheppin að fá ælupest inni á staðnum. Við stelpurnar gátum
ekki annað en hlegið þó svo að þetta hafi auðvitað
verið frekar ömurlegt. Bara óborganlegar aðstæður. Ég hefði átt að
hlægja minna því daginn eftir var ég komin með pestina, upp og
niður. Meiriháttar skemmtilegt! Við Ingalillý og Tinna skemmtum
okkur svo reyndar mjög vel þetta kvöld þrátt fyrir fjarveru
skemmtanalöggunar sjálfrar. Hefði að sjálfsögðu verið meira stuð að
hafa Önnu Birnu mína en við reyndum að gera gott úr þessu. Kvöldið
var tja...öðruvísi og enduðum við á því að fara á írska
pöbbinn á Strikinu þar sem dansað var uppi á borðum við life
tónlist. Mjög skemmtileg stemming engu að síður.

Sunnudagurinn fór svo eins og áður sagði í allt aðra hluti en
hann átti að gera en upp úr standa frábærir dagar með frábærum
stelpum. Stelpur: Emilíana þakkar líka fyrir rosa skemmtilega daga
og finnst þið ógeðslega skemmtilegar og "elskar ykkur"
(haha!) Er ekki annars lúxus að geta farið óáreittar á
klósettið?

Svo að fólk haldi ekki að Gísli sé fluttur þá átti hann sem
sé líka frábæra helgi. (Mætti nú alveg fara meira fyrir hans
skrifum hér - sjálfur rithöfundurinn ætti nú ekki að eiga erfitt
með það) Hann er sem sé ekki fluttur en fór til
Íslands í brúðkaup til Jóa og Oddnýjar um helgina. Skemmti sér
konunglega og átti víst frábæra helgi. Innilega til
hamingju Jói og Oddný með hjónabandið!
En nú er alvaran tekin við á ný og verður sjálfsagt nóg að gera
þangað til um miðjan Desembermánuð. Ég er sem sagt á fullu í
ritgerðarskrifum um þessar mundir. Gísli æfir 2x á dag og reynir
þess á milli að hafa ofan af fyrir Emilíönu
svo mamman geti lært. Vonum bara svo að hún fari að
fá leikskólapláss, hennar vegna og okkar.
Væri svo gaman fyrir
hana að fá smá útrás í leik og svoleiðis.
Jæja...gott í bili.
Okkar bestu kveðjur til vina og fjölskyldu.